Vertu með! Milljónir notenda um allan heim

CARDGAMES.IO

CardGames.io er einföld og skemmtileg vefsíða þar sem þú getur spilað sígil spil, kapla, og borðspil. Ekkert niðurhal, engin skráning - bara hrein skemmtun. Hvort sem þú vilt slaka á, læra ný spil, eða keppast við tölvuna eða aðra andstæðinga þá gerir CardGames.io þér það auðvelt að njóta góðra spila hvar og hvenær sem er.

Spila núna

Um okkur

Rauðás Games er íslenskt leikjafyrirtæki sem sérhæfir sig í að skapa einfalda og skemmtilega vefleiki sem eru aðgengilegir fyrir alla. Við trúum því að góðir leikir þurfi ekki að vera flóknir — aðeins vel hannaðir, notendavænir og fullir af karakter. Verkefni okkar miða að því að skapa skemmtilega stemmingu og góða notendaupplifun sem allir geta notið.

Við vinnum stöðugt að spennandi hugmyndum, þróun á nýjum leikjum, og að skapa samfélag þar sem fólk getur slakað á, keppt við hvort annað, og haft gaman saman. Rauðás Games er drifið áfram af ástríðu fyrir leikjum og löngun til að deila gleðinni sem góðir leikir veita.

raudas@raudasgames.is | Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Teymið að vinna saman yfir borði.